Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006
19.6.2006 | 23:22
Ofurþreyta.com
Ég er ennþá alltof þreytt eftir MA-ríjúníonið til að blogga... alltof þreytt... og raddlaus...
Komin heim í Óló og ætla að vera fram á fim.. safna orku og hitta fallegt fólk. Reyni að blogga um snilldarferðina þegar ég hef safnað nægilegri orku...
tata
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2006 | 17:18
Nostalgía.is
Jæja.. ótrúlegt að það sé bara komið að þessu. Hjálmar er að koma ná í mig eftir nokkar mínútur og við erum að fara norður í tilefni 5 ára stúdentsafmælis okkar - fyrir ykkur sem voruð ekki búin að ná því. Jahér.. Bekkjarpartý 4. FG-bekkjarins er í kvöld og eftirvæntingin leynir sér ekki. Á morgun er svo óvissuferðin... nostalgíukast í gangi hérna.
En ég á ekki von á því að blogga næstu daga svo þið verðið að láta færslur síðustu næturvakta nægja... hafiði það ofurgott og til lukku með 17. júní - á laugardaginn! :)
I´m off to Akueyrensis...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.6.2006 | 03:17
Að eignast fatlað barn
Á næturvakt er gaman. Fann möppu ofan í skúffu þar sem eru upplýsingar um þær fatlanir sem þjónustuþegar skammtímavistunarinnar hafa. Mjög fróðlegt og gott að lesa þetta, margt sem maður kannast við og annað sem kemur á óvart. Ég átti ekki von á því að finna eitthvað "nýtt" þegar ég fór yfir Downs pakkann en rakst á þessa frábæru sögu og fékk hana lánaða af www.downs.is. Hún er frábær leið til þess að gefa okkur pínku innsýn inní líf foreldra sem eignast fatlað barn. Njótiði vel og nýtiði hana vel!
Velkomin til Hollands
eftir
Emily Perl Kingsley
Ég hef oft verið beðin um að lýsa því hvernig það er að ala upp fatlað barn, til þess að fólk sem hefur ekki notið þessarar sérstæðu reynslu geti skilið og ímyndað sér hvernig tilfinning það er.
Það er eins og...
Þegar þú átt von á barni er það eins og að skipuleggja dásamlegt ferðalag, t.d. til Ítalíu. Þú kaupir fullt af leiðsögubókum og skipuleggur frábærar ferðir.Til Colosseum-safnsins, sjá Davíð Michelangelos og gondólana í Feneyjum.Þú lærir jafnvel nokkrar setningar í ítölsku. Þetta er allt mjög spennandi.
Eftir að hafa beðið spennt í marga mánuði rennur dagurinn loksins upp. Þú pakkar niður og leggur af stað. Eftir nokkurra klukkustunda flug lendir vélin.Flugfreyjan kemur inn og segir: "Velkomin til Hollands."
"Hollands?!?" segir þú. "Hvað meinar þú með Holland? Ég ætlaði að fara til Ítalíu! Ég á að vera á Ítalíu. Alla ævi hefur mig dreymt um að fara til Ítalíu."
En það hefur orðið breyting á flugáætlun. Flugvélin er lent í Hollandi og þar verður þú að vera.
Mestu máli skiptir þó að þeir hafa ekki flogið með þig á hræðilegan, viðbjóðslegan, skítugan stað fullan af meindýrum, hungri og sjúkdómum. Þú ert bara annars staðar en þú ætlaðir þér í upphafi.
Þú verður því að fara út og kaupa nýjar leiðsögubækur og læra nýtt tungumál. Þú kemur til með að hitta hóp af fólki sem þú hefðir annars aldrei hitt.
En þetta er bara annar staður. Allt gerist miklu hægar en á Ítalíu og hér er ekki eins töfrandi og á Ítalíu. Þegar þú hefur náð andanum, staldrað við um stund og litið í kringum þig, ferðu að taka eftir því að í Hollandi eru vindmyllur... og í Hollandi eru túlípanar. Holland getur jafnvel státað af Rembrandt.
Allir sem þú þekkir eru uppteknir við að koma og fara frá Ítalíu... og þeir eru allir að monta sig af því hversu góðar stundir þeir áttu þar. Alla ævi átt þú eftir að segja: "Já, það var þangað sem ég ætlaði að fara, það var þangað sem ég var búin að ákveða að fara."
Sársaukinn mun aldrei, aldrei hverfa, því missir draumsins sem ekki rættist er mikill.
En... ef þú eyðir allri ævinni í að syrgja að þú fórst ekki til Ítalíu nærð þú aldrei að njóta þeirra sérstöku, yndislegu hluta, sem Holland hefur upp á að bjóða.
Íslensk þýðing: Indriði Björnsson
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2006 | 00:12
Málleysi
Sáuð þið Ísland í dag í gærkvöldi? Þar var tekið viðtal við sjómann sem heiðraður var á Sjómannadaginn í Reykjavík. Hann hefur verið á sjó í tugi ára og er heyrnarlaus. Mér finnst frábært að Ísland í dag hafi séð sóma sinn í því að taka viðtal við manninn, heyr heyr. Annað sem ég er gríðarlega hneyksluð á er framkoma fréttakonunnar við manninn. Hún byrjaði viðtalið á að segja: ,,nú ert þú bæði heyrnarlaus og mállaus..." !!! Halló? Er ekki fokkin 2006? Hvað gefur þessari fréttakonu rétt til þess að dæma það hvort táknmálið sem hann notar sé mál eða ekki? Með því að segja þetta var hún gjörsamlega að gefa skít í hans móðurmál, táknmálið. Það er líka alltof algengt, þrátt fyrir að árið sé 2006, að almenningur haldi að heyrnarlausir geti ekki talað. Auðvitað geta heyrnarlausir alveg talað.. alveg eins og Grænlendingar, Akureyringar, Vestmannaeyjingar, Slóvenar og Íslendingar. Það eru bara fordómar að halda öðru fram.
Jæja, það má vel vera að ég sé að gera úlfalda úr mýflugu yfir þessu. Mér finnst það bara þess vert að tala um þetta þar sem þetta kom fram í fjölmiðlum. Fjölmiðlar hafa gríðarleg áhrif á þankagang almennings í landinu. Fólk sem vinnur í fjölmiðlum verður að vera meðvitað um það hvernig það talar, ekki bara hvað málfar varðar. Heyrnarlausir eru ekkert heimskir, það eina sem greinir þá frá okkur er ekki það að þeir séu mállausir heldur að þeir heyra ekki - heyrnarlausir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2006 | 23:27
Fyrst kaffi, svo áfengi?
Merkilegt.. athyglisvert..
en ætli öll hin slæmu áhrifin af því að drekka áfengi séu tekin inní dæmið? Eða bara skorpulifur?
Ekki það að þetta hafi nein áhrif á plön næstu daga... en það sakar ekki að hafa varann á og fá sér ca 4 bolla á dag - enda 5 daga næturvaktatörn að ljúka :)
Kaffi hlífir lifrinni við verstu áhrifum áfengis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2006 | 19:39
Þegar ég kemst í orðabók:
-- Fannita --
[adjective]:
Extremely extreme!
'How will you be defined in the dictionary?' at QuizGalaxy.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.6.2006 | 00:58
Hart smjör og súpa
Hvernig væri nú að koma með smá fróðleikspunkta og uppskrift a lá Fannita Dorada? Held það sé vel kominn tími á það. Ætla að gefa ykkur uppskrift af hrikalega góðri súpu sem ég geri oft (en er aldrei eins) og gefa ykkur nokkra góða punkta í farteskið.. hvernig hljómar það?
- Þegar þið eruð að baka og smjörið er grjóthart eftir að hafa verið í ísskápnum, skil ég ótta ykkar við að skera það niður í kubba og blanda við blönduna ykkar (t.d. ef þið eruð að baka brauð). Þá er deigið í hættu að fara í kekki. Gott ráð við þessu er ekki að kubba smjörið niður heldur þetta: setjið skálina sem smjörið á að fara í á eldhúsvog - tarið (eða núllstillið). Takið smjörið/smjörlíkið og notið ostaskera við að skera þunnar sneiðar þar til þið hafið fengið nægilegt magn af smjörinu og trúiði mér, það er mun auðveldara að hnoða svona deig heldur en ef maður sker í kubba.
- Ef þið notið Iceberg sallat í matargerð er ekki auðveldast að taka blöðin hvað af hverju og skera þau svo. Setjið kálhausinn á hvolf á borð, þ.e. með rótina upp í loftið. Þrýstið með höndunum ofan á rótina þannig að hún ýtist niður í hausinn. Við þetta losnar bara rótin og þið getið notað blöðin heil eða rifið þau niður í minni búta.
Og svo uppskriftin... Það sem þarf:
- 1 stór dós Hunt´s pastasósa (t.d. Garlic & onion, italian sausage eða annað)
- sletta af tómatpúrru eða tómatpestói
- 1 rauðlaukur
- hvítlaukur eftir smekk (ATH. Það er BANNAÐ að nota hvítlauksduft! Ferskur hvítlaukur er málið, það eða sleppið honum)
- ef vill: 1 hvítur laukur, 3-4 skallottlaukar
- Grænmeti eftir smekk (t.d. paprika, gulrætur, sætar kartöflur...) smátt skorið.
- Krydd eftir ímynduarafli og smekk
Byrjið á því að saxa laukinn/laukana smátt og steikja , líka hvítlauk, í smá ólífuolíu í frekar stórum potti. Þegar það er orðið sveitt (ca 5-7 mín) bætið þá grænmetinu útí, ef þið notið það, og þvínæst pastasósunni og fyllið dósina af vatni og setjið líka ofan í pottinn. Skellið 1-2 tsk af tómatpúrru með og hrærið vel í. Nauðsynlegt er að krydda þetta með nýmöluðum svörtum pipar (annað er vont) og Maldon sjávarsalti (annað er óhollt). Svo má setja krydd eftir smekk, s.s. piri-piri krydd, þurrkaðan chilli (ef ferskur chilli er notaður þá er hann settur á sama tíma og grænmetið), pastakrydd, timjan, oregano eða hvað sem ykkur finnst gott. Þessi súpa er látin malla í amk hálftíma (því lengur því betra) og þá smökkuð til. Sumir vilja ekki hafa mikið tómatbragð og þá er vatni bætt útí. Það er einnig hægt að mauka alla, eða hluta, súpunnar og/eða bæta smá matreiðslu/jurtarjóma útí. Mér finnst gott að setja smá pasta útí á síðustu stundu, þetta pínulitla pasta sem er bara 2 mín að sjóða. Svo er þetta bara spurning um að prófa sig áfram. Pastasósur eru fínar, algjörlega idiot proofed, en prófiði ykkur áfram með því að nota tómata í dós og krydda sjálf!
12.6.2006 | 14:28
Línur skýrast...
Þá eru línur farnar að skýrast töluvert með Akureyrarferðina góðu... Ég er það heppin að ég fæ far með Hjálmari bekkjarbróður mínum en hann mun ekki aka norður á rútu heldur verður það langferðabíll! Föruneytið getur ekki klikkað svo ég hlakka mikið til. Við munum einnig leggja af stað á miðvikudeginum - sem er nýtt plan - og þá missi ég ekki af bekkjarpartýinu á miðvikudagskvöldið :) Það er samt einn hængur á, ég er bara með gistingu frá fimmtudegi og fram á sunnudag... En hey, það hlýtur að reddast!
Hver er sólin sem var í morgun? Ég vakna hérna eftir nokkurra tíma svefn og ætla að skunda í brúnkusöfnun í laugum borgarinnar en neinei, ekkert slíkt í boði. Bara rigning. Reyndar er það alveg fínt, hafiði nasað útí loftið eftir rigningar? Lyktin er unaðsleg!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.6.2006 | 07:51
Að springa úr gleði
Sjettörinn hvað ég dýrka vinnuna mína - þó ég sé á næturvöktum akkúrat núna. Krakkarnir sem koma hingað eru gull í alla staði, ég á sko eftir að læra margt í sumar :) Er nánast ekkert þreytt eftir þessa næturvakt, bara endurnærð af þessum samskiptum við þau þegar þau vakna og koma sér í bíla og í vinnu. Þetta verður gott sumar, þrátt fyrir rigningar.
Sól í dag sem er gott. Kannski ég fari og hvíli lúin bein í einni af sundlaugum Höfuðborgarinnar og safni brúnku... maður er ekki með Tanorexia fyrir ekki neitt ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2006 | 15:34
Er töff að vera í hjólastól?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)