Bloggfærslur mánaðarins, júní 2006
10.6.2006 | 03:33
Enn á næturvakt..
Er þetta löglegt???
Dísös kræst... kannski ég segi bara Jónsa upp og byrji með Clive Owen...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.6.2006 | 02:55
Ástfangin á næturvakt...
Ésús... þessi maður er svo unaðslega fallegur! Leigði óvart dvd mynd þar sem hann leikur einstaklega kynþokkafullan mann... jömmí jömmí...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2006 | 00:23
Á næturvakt...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2006 | 17:59
Online dating?!?
Rétt í þessu var ég að fá skilaboð sem hljóðuðu svo:
Thank you for suscribing to www.irrealhost.com - Dating Service !! Your phone will be charged $2.oo per day until you unregister online.
Einhvern veginn gruna ég alltaf Magga Má þegar ég fæ svona fáránleg sms...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.6.2006 | 16:33
Er gott að búa á Akureyri?
Rakst á þessa ágætu frétt nú áðan. Ég er nú bara nokkuð sátt við þetta og hlakka til að sjá hvernig málefnasamningurinn gengur. Vantar þá ekki bara aðeins meira atvinnuframboð og er þá Eyrin góða ekki orðin að paradís? Ég myndi halda það... kannski maður fari að svipast um eftir góðri stöðu og stefna á að verða Akureyrarmæ á ný eftir ár - þá útskrifuð sem félagsráðgjafi! Ég er ekki frá því að það kitli allsvakalega að setjast að norðan heiða í einhvern tíma, kannski ég slái bara til.
Annars eru 6 dagar þar til ég skunda á Eyrina góðu. Við Þórhildur ætlum að sameinast í bíl og skemmta hvorri annarri þessa löngu leið. Verst finnst mér þó að missa af bekkjarpartýinu sem verður n.k. miðvikudagskvöld, en við mætum þó tvíefldar í óvissuferð árgangsins á fimmtudaginn! Að hugsa sér, 5 ár síðan ég útskrifaðist úr MA. Það þýðir líka að það eru 9 ár síðan ég hóf nám þar. 9 ár! Ótrúlegt, alveg ótrúlegt. Nostalgían er farin að aukast allverulega dag frá degi og tölvupóstar sem ganga á milli okkar í bekknum eru hlaðnir menntóorku og fiðringi. Í dag kom inn um lúguna hjá mér Miðinn, þessi Miði mun veita mér aðgöngu á sjálfa júbbíhátíðina (afmælisárgangahátíðina) þann 16. júní - eftir akkúrat viku. Stúdentshúfan er á leiðinni að vestan svo ég geti pússað MA-stjörnuna, bekkjarbúningurinn er í þróun, búið er að panta herbergi á Heimavist MA og bara eftir að pakka niður. Dagarnir fram að þessu verða þó frekar erfiðir, er á næturvakt næstu 5 sólarhringa, ekki eins spennó.
Málefnasamningur kynntur á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2006 | 01:46
Reiðipistill um fatlaða... og dagbókarfærsla
Reykjavík Trópík: FRÁBÆR! Unaðsleg hátíð sem ég ætla pottþétt að mæta á að ári - þó svo að um þær mundir (getur maður sagt svo?) verði ég í Danaveldi. Supergrass voru frábærir, svei mér þá ef ég skoppaði ekki extra mikið akkúrat þegar þeir voru að spila. Trabant voru klárlega númer hátíðarinnar að mínu mati, sem og Sleather Kinney sem spilaði á Nasa. Fílaði þessar rokktussur í tætlur, trommaragellann er sko mín (ef ég bara væri lesbísk).
Hommaball á Kaffi Reykjavík var á dagskrá á sunnudagskvöldið eftir að Trópík lauk. Ég, Tinnan mín og Árni vinur minn fórum þangað. Ótrúlegt stuð, endalaust af Eurovision lögum og stemmingu. Pant fara á svona ball aftur! Vei vei vei!
Er búin að vera frekar lasin síðustu 2 daga, beinverkir, hálsbólga, höfuðverkir og almennt slen. Ömurlegt að vera lasin, algjörlega ömurlegt. En ofurtúttan er risin úr rekkju, enda tæp vika í reunion aldarinnar! Vúbbídúbbí!
Árni bauð mér á rúntinn í kvöld og fór meira að segja með mér á staði hér í borg sem ég hef aldrei skoðað áður. Meðal þeirra var gamli Heyrnleysingjaskólinn sem er rétt hjá kirkjugarðinum í Fossvoginum (þar sem Brúarskóli er núna). Unaðslegt umhverfi, hefði sko þokkalega verið til í að vera þarna í skóla. Endalaust af fallegum trjám og fallegu umhverfi. Þarna var líka (í gamla daga) heimavist fyrir heyrnarlaus börn sem voru tekin frá foreldrum sínum og beinlínist vistuð þarna for better or worse. Þarna var mötuneyti, félagsmiðstöð, íþróttasalur og allt sem þarf. Frábær hugmynd kannski, eða hvað?
Þrátt fyrir að vera falleg hugsun þá er þetta dæmi um aðgreiningarstefnu, þeir sem ekki eru eins og meginþorri almennings eiga að vera annars staðar. Í dag var ég á nýliðanámskeiði hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Reykjanesi (en þar vinn ég einmitt) og kom þar kona nokkur, Salome að nafni, og talaði við okkur um fatlaða og aðra jaðarhópa í samfélaginu (s.s. konur, svarta, feita og aðra - allt á mismunandi tímapunkti). Hún sagði okkur m.a. að þegar hún byrjaði að vinna á Kópavogshæli (spáiði í nafni?!?) árið 1978 minnir mig, var hún á deild þar sem 17 karlmenn bjuggu. Þar voru 2 klósett með 4 klósettskálum og 2 sturtum, þröngur húsakostur og fyrir allan þennan skara voru til samtals 2 tannburstar! Hugsiði ykkur! Þeim fötluðu sem bjuggu þarna var "færð" öll þjónusta svo þau "þurftu" ekki að sækja hana útí bæ. T.d. kom hárgreiðslukona reglulega og klippti fólkið, það var bara einn tannlæknir sem samþykkti að þjónusta "þetta fólk", tískuvöruverslanir komu með stafla af fötum og seldu fólkinu og svo mætti lengi telja. Allt til þess eins að "auðvelda þessu blessaða fólki lífið". Iss piss, hlusta ekki á svona! Hvað er meira hallærislegt en að viðurkenna ekki sjálfræði fatlaðra (og hvaða jaðarhóps sem er ef út í það er farið?) og veita þeim valkosti til að lifa sínu lífi? Maður spyr sig?? Af hverju mega fatlaðir, svartir, heyrnarlausir, feitir og aðrir í samfélaginu ekki bara velja sína hárgreiðslustofu, sinn skóla, sinn farmáta og þar fram eftir götunum. Ef töluvert fatlaður einstaklingur ætlar að fara í bíó þarf hann að ákveða það með minnst sólarhrings fyrirvara svo hægt sé að panta ferðaþjónustu fatlaðra og gera ráð fyrir fötluðum á sýningu. Er þá ekki bara betra að sitja heima? Það er ekki þetta fólk sem er fatlað, gott fólk. Það er samfélagið sem við búum í sem fatlar þetta fólk! Jisús minn hvað ég get hneykslast á svona löguðu!
Já, og afsakiði öll upphrópunarmerkin. Þetta er bara ég...
2.6.2006 | 13:51
Mikið að gera á stóru heimili
Nýja vinnan mín er æði, stundum langar mig ekki að fara heim úr vinnunni. Frábærir krakkar sem eru að koma og samstarfsmenn (konur) mínar eru mjög fínar. Þetta stefnir í gott gott sumar, byrjaði m.a.s. að plana starfsmanna (kvenna) djamm með einni í gær, hressandi. Frí í vinnunni um helgina en í staðinn er ég svo heppin að fá að vinna á Reykjavík Trópík hátíðinni sem verður í risa risa tjaldi fyrir framan Háskóla Íslands. Jibbý! Vinnan í dag er frá 16-21 og á morgun frá 21-02 þar sem ég verð vant við látin allan fyrripartinn. Við Tónskáldið ætlum nefnilega að fara á Sólheima og njóta lífsins. Hitta allt þetta frábæra fólk sem þar býr og hlusta á Svavar Knút opna Listasumar Sólheima með tónleikum í Sólheimakirkju kl. 13:30. Eftir það er planið að njóta lífsins enn frekar og hafa það náðugt, vonandi verður gott veður svo ég geti lagst í grasið og tuggið strá.
Ég var næstum því á leiðinni til Finnlands um næstu mánaðarmót á vegum LÆF, en ég náði ekki að redda vaktinni minni í tæka tíð.. :( Frekar súrt, en ég fer bara á Færeyska daga í staðinn, það verður sko ekkert slor! Var bara farin að hlakka til að æfa finnskuna ;)
Svakalega er líkamsræktarstöðin mín, sem ég nýti óspart (!), frábær. Í fyrrasumar fékk ég frítt í allar sundlaugar ÍTR allt sumarið og það sama mun gilda í sumar. Get ekki annað sagt en að þetta sé mjög mjög gott framtak þar sem ég elska að fara í sund á sumrin! Nú þarf ég bara að fjárfesta í góðum bakpoka sem ég get skautað með á leið í sundið.. frábært!
Í gærkvöldi var ég umvafin gullfallegum karlmönnum, gjörsamlega umvafin. Þeir sátu nánast á hverju borði í kringum mig og meira að segja voru nokkrir folar við borðið mitt. Það er þó til einskis að ætla sér eitthvað í þessum efnum, enda var ég inni á Café Cozy og ekkert nema samkynhneigðir menn sem sátu þarna.. ja, nema Atli Björn og Goggi - en hey, moment to treasure ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)