Að eignast fatlað barn

Á næturvakt er gaman. Fann möppu ofan í skúffu þar sem eru upplýsingar um þær fatlanir sem þjónustuþegar skammtímavistunarinnar hafa. Mjög fróðlegt og gott að lesa þetta, margt sem maður kannast við og annað sem kemur á óvart. Ég átti ekki von á því að finna eitthvað "nýtt" þegar ég fór yfir Downs pakkann en rakst á þessa frábæru sögu og fékk hana lánaða af www.downs.is. Hún er frábær leið til þess að gefa okkur pínku innsýn inní líf foreldra sem eignast fatlað barn. Njótiði vel og nýtiði hana vel!

Velkomin til Hollands

 

eftir 
Emily Perl Kingsley




Ég hef oft verið beðin um að lýsa því hvernig það er að ala upp fatlað barn, til þess að fólk sem hefur ekki notið þessarar sérstæðu reynslu geti skilið og ímyndað sér hvernig tilfinning það er.
Það er eins og...
Þegar þú átt von á barni er það eins og að skipuleggja dásamlegt ferðalag, t.d. til Ítalíu. Þú kaupir fullt af leiðsögubókum og skipuleggur frábærar ferðir.Til Colosseum-safnsins, sjá Davíð Michelangelos og gondólana í Feneyjum.Þú lærir jafnvel nokkrar setningar í ítölsku. Þetta er allt mjög spennandi.
Eftir að hafa beðið spennt í marga mánuði rennur dagurinn loksins upp. Þú pakkar niður og leggur af stað. Eftir nokkurra klukkustunda flug lendir vélin.Flugfreyjan kemur inn og segir: "Velkomin til Hollands."
"Hollands?!?" segir þú. "Hvað meinar þú með Holland? Ég ætlaði að fara til Ítalíu! Ég á að vera á Ítalíu. Alla ævi hefur mig dreymt um að fara til Ítalíu."
En það hefur orðið breyting á flugáætlun. Flugvélin er lent í Hollandi og þar verður þú að vera.
Mestu máli skiptir þó að þeir hafa ekki flogið með þig á hræðilegan, viðbjóðslegan, skítugan stað fullan af meindýrum, hungri og sjúkdómum. Þú ert bara annars staðar en þú ætlaðir þér í upphafi.
Þú verður því að fara út og kaupa nýjar leiðsögubækur og læra nýtt tungumál. Þú kemur til með að hitta hóp af fólki sem þú hefðir annars aldrei hitt.
En þetta er bara annar staður. Allt gerist miklu hægar en á Ítalíu og hér er ekki eins töfrandi og á Ítalíu. Þegar þú hefur náð andanum, staldrað við um stund og litið í kringum þig, ferðu að taka eftir því að í Hollandi eru vindmyllur... og í Hollandi eru túlípanar. Holland getur jafnvel státað af Rembrandt.
Allir sem þú þekkir eru uppteknir við að koma og fara frá Ítalíu... og þeir eru allir að monta sig af því hversu góðar stundir þeir áttu þar. Alla ævi átt þú eftir að segja: "Já, það var þangað sem ég ætlaði að fara, það var þangað sem ég var búin að ákveða að fara."
Sársaukinn mun aldrei, aldrei hverfa, því missir draumsins sem ekki rættist er mikill.
En... ef þú eyðir allri ævinni í að syrgja að þú fórst ekki til Ítalíu nærð þú aldrei að njóta þeirra sérstöku, yndislegu hluta, sem Holland hefur upp á að bjóða.


Íslensk þýðing: Indriði Björnsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

kl 03:15 að blogga !!! ;)

arni (IP-tala skráð) 14.6.2006 kl. 08:34

2 Smámynd: Ólafur N. Sigurðsson

Geðveikt falleg saga.

Er eflaust mjög erfitt að eignast fatlað barn, að sjálfsögðu eitthvað sjokk og svona þegar að það kemur í ljós. En öll börn eru guð gjöf og eiga það besta skilið sem mögulegt er.

Ólafur N. Sigurðsson, 14.6.2006 kl. 08:47

3 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Já, þessi saga er mjög falleg.. og á eflaust við margt annað en það að eignast fatlað barn. Þetta er spurning um lífsviðhorf, ekki satt :)

Árni: ég var á næturvakt ;)

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 14.6.2006 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband