Færsluflokkur: Bloggar
3.4.2007 | 23:32
Le Dinner
Haldiði að ég hafi ekki orðið svo heppin í kvöld að Vallan mín og Rannveig Katrín buðu mér til matarsamsætis með sér þar eð húsfreyjan á heimilinu, Addi, var að stunda áhættuhegðun. Valgerður reiddi fram dýrindslax í ofni, unaðslegt kartöflugratín og geggjað salat með djúsí fetaosti. Það var sko kaffi og meððí á eftir, svona alvöru. Heimasætan ekki alveg til í að fara í náttfötin svo ég skoraði á hana að ég yrði fljótari að gera 20 armbeygjur. Sú styttri tók ekki annað í mál en að ég legðist í það að gera 100 armbeygjur á meðan að hún háttaði sig. Ég tók 40 áður en hún náði að hátta sig og er betri kona fyrir vikið. Bíð eftir harðsperrum morgundagsins.
Annars sótti ég um annað starf hérna á Akureyrinni. Valla nánast skoraði á mig að sækja um það, og ég var áður búin að sjá það auglýst og fá smá fiðring - svo ég sótti bara um - gerðist villt(ari). Sakar ekki að prófa ;) Þetta fer að verða eins og argasta spennusaga, þessi atvinnumál mín. Jaseisei.
Svo er ég búin að ná áttum. Fékk snilldar ráð frá einum samstarfsfélaga þar sem hann sagði mér að Fjallið væri alltaf í vestur. Núna þarf ég ekki annað en líta þangað og þá veit ég sko hvað snýr upp og niður.
Og annað í fréttum. Hef verið í því síðustu daga að slengja saman tveimur orðatiltækjum og mismæla mig. Má þar nefna að gera hlutina með hangandi hug, en það er í miklu uppáhaldi.
Morgundagurinn: vinna, vinna, vinna og leggja svo í'ann heim á Snæfellsnesið íðilfagra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2007 | 17:52
Hötun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.4.2007 | 22:54
Glæsilegt!
Þetta líst mér vel á! Eðalfélagsráðgjafi í nefndinni, Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf. Þessi nefnd á vafalaust eftir að skila flottri skýrslu með góðum upplýsingum þegar hún lýkur starfi. En hvað gerum við svo? Við þurfum líka að vera vel vakandi fyrir því sem er að gerast í samfélaginu okkar núna í dag. Ekki endalaust horfa til fortíðar og fordæma gömul vinnubrögð, þó svo að sjálfsögðu sé það gott og gilt. Í dag er alveg jafn mikið að gerast sem eftir nokkra áratugi verður fordæmt líkt og við höfum verið að gera. Samfélög verða sífellt flóknari og fjölbreytileikinn sem svo oft er yndislegur verður mörgum mikil ógn.
Ég var stödd á veitingastað hérna á Akureyri í hádeginu í dag með tveimur félagsráðgjöfum. Var þar mikið rætt og skrafað, enda alltaf nóg um að vera hér nyrðra - sem og í heiminum öllum ef út í það er farið. En þar kom dálítið athyglisverð spurning: hvað er að gerast í dag sem er sambærilegt þessum málum sem við hneykslumst á í dag?
Á meðan að nefndin starfar skulum við hin taka til starfa og skoða í kringum okkur með gagnrýnum augum. Hvað er ekki að virka? Hvað ER að virka og ber að varðveita?
![]() |
Nefnd til að kanna starfsemi meðferðarheimila skipuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2007 | 22:19
Kona
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2007 | 16:49
Allt í plati!
Að sjálfsögðu var ég að plata með þessa ótrúlega spennandi vinnu. En það var gaman að fá öll sms-in og símtölin frá ykkur :) Ég gat bara ekki setið á mér að plata ykkur smá, á löglegum degi.
Sól og blíða á Eyrinni. Norðurljós og næstum-því-fullt tungl í gærkvöldi svo ég skundaði með Kermit á þvottaplan og svo uppí Kjarnaskóg að njóta dýrðarinnar. Svo bara vinna, vinna, vinna og vinna framundan. Ætli ég plani ekki einn páskaeggjaleitarleik fyrir lilsys og heimsækji ömmu og afa í sveitinni og ömmu í Grundó - annars bara læralæralæra. Vá hvað ég lifi spennandi lífi þessa dagana.
Er annars að hnoða í ágætisfærslu. Hún kemur þegar ég hef aðeins meiri tíma en akkúrat núna.
Takk fyrir að trúa að ég gæti séð um þetta fáránlega flotta úrræði! ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2007 | 11:52
Játning
Jæja, það er kannski bara eins gott að játa það hér fyrir ykkur í stað þess að taka á móti skrilljón símtölum um þetta efni. Ég minntist á það um daginn að ég hefði sótt um vinnu nokkru áður. Ég fékk sem sagt svar í síðustu viku og er svakalega spennt vegna þessa. Hreint ótrúlegt hvernig ég gat legið á þessu í heila 4 daga! En seisei, kélla að þroskast held ég bara.
Eníhú, nýja vinnan mín er ótrúlega spennandi og kannski svolítið öðruvísi en ég hefði reiknað með að byrja í strax eftir nám. En verður maður ekki bara að stökkva út í djúpu laugina og láta slag standa? Og hvar er ég svo að fara vinna? Júmm, ég mun sjá um nýtt úrræði á vegum Akureyrarbæjar fyrir unglinga sem stunda áhættuhegðun! Tadaramm... einmitt það sem mig hefur langað til þess að gera frá því ég hóf nám. Bjóst ekki við þessu, en það er kannski bara skemmtilegra þannig. Jamm.. meira get ég ekki sagt að svo stöddu þar sem þetta er allt svoldið leyndó ennþá.
Og úr einu í annað. Eftir að ég kom hingað norður hef ég gjörsamlega þurft að læra að nota áttirnar. Hérna segir fólk "norðan við x" og "í syðsta húsinu" og þar fram eftir götunum. Það er sem sagt ekki nóg að segja hægra megin eða vinstra megin - þá skilur fólk mig illa. En þetta er nú allt að koma hjá mér, það get ég sagt ykkur. Ég fór þó í gærkvöldi og ákvað að leigja mér vídjóspólu eftir erfiðan dag. Jújú, ekkert svosem um það að segja nema að eins og á mörgum öðrum stöðum fylgir ein gömul hverri nýrri spólu. Sumstaðar eru ákveðnar hillur fyrir þessar spólur en á flestum stöðum eru þetta spólur undir ákveðnu númeri. En á Akureyri? Jú, þá eru allar spólurnar í austurhlutanum sem fylgja með nýrri spólu. Eftir að hafa staðið í smástund og reynt að gera mér í hugarlund hvað væri austur miðað við staðsetninguna þá fór ég til gaursins sem var að vinna og spurðist fyrir. Eflaust eina manneskjan sem veit ekki hvað er austur þegar maður stendur inní Bónusvídjó... Tók myndina Proof með Gwyneth Paltrow, Jake Gyllenhaal og Anthony Hopkins. Hún var svosem ekkert til að hrópa húrra fyrir, nema fyrir það að Jake Gyllenhaal er afar myndarlegur piltur. Gamla myndin sem ég tók úr austurhlutanum var sálfræðitryllirinn Trauma með Colin Firth í aðalhlutverki. Hef ekkert heyrt um hana en finnst Colin afar myndarlegur maður og svo sjarmerandi miðað við hlutverk hans í Bridget Jones. Klárlega verð ég að láta annað en fegurð karlkynsleikara ráða för þegar ég vel mér bíómyndir því "tryllirinn" í myndinni var Colin, myndin sjálf var crap.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.3.2007 | 17:18
Bush og Blair söngfélagar
Smá breik bara til þess að deila þessu myndbandi með ykkur. Þarna má sjá Bush og Blair syngja saman lagið Gay bar... bara fyndið.
Og svo mæli ég með að fólk líti amk daglega inná Samfó.is, þar er samansafn af skemmtilegu efni :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 12:00
Eins og talað úr mínum munni
Já, eins og talað úr mínum munni eða af mínum höndum. Búin að vera bíða eftir þessu alla vikuna. Þetta málefni er svo fáránlega mikilvægt en einhvern veginn þá "sofnar það í nefnd" eða fær illa útreið á þingi og almenningur pælir lítið sem ekkert í þessu. Mér finnst svo hneykslanlegt að íslenska táknmálið sé enn ekki viðurkennt hérna á Íslandi. Við erum sko tugum ára á eftir mörgum löndum - þjóð sem vill vera í fararbroddi.
Kíkið endilega á heimasíðu Tryggingamiðstöðvarinnar og sjáði hvað fólkið þar er að gera brill hluti hvað heyrnarlausa varðar. Í helstu flokkunum er hægt að velja (vinstra megin) að fá upplýsingarnar á táknmáli. Frábært framtak sem lítið hefur farið fyrir. Hvernig væri svo, að þú lesandi góður, kíktir eitt augnablik á glænýja og flotta heimasíðu Félags heyrnarlausra og kynnir þér t.d. hugmyndir um táknmálsviðmót á heimasíðum, enda viljum við jú jafnt aðgengi allra að upplýsingum - ekki rétt? Svo er líka afar hressandi að lesa yfir sögu heyrnarlausra og þekkja aðeins þann heim sem heyrnarlausir hafa búið í.
En jamm og já, er svo hrikalega bissí í að læra að ég hef ekki tíma til að blogga.
![]() |
Ungir jafnaðarmenn vilja að allir Íslendingar verði viðurkenndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2007 | 11:20
Húrra!
Þetta þykja mér góðar fréttir. Með þessu er hægt að gera ráðstafanir hafi börn ekki fulla heyrn. Það tekur tíma að læra táknmál og því eðalfínt að foreldrar fái upplýsingar um þessi mál svo fljótt sem auðið er. Tengsl foreldra og barns þurfa að myndast strax frá upphafi meðgöngu. Það að fá úr því skorið hvort barnið heyrir vel eður ei hjálpar mikið til við áframhaldandi myndun geðtengsla sem spila risahlutverk í lífi barnsins. Því get ég ekki annað en sagt: Húrra!
Mæli svo með því að þið, lesendur góðir, fylgist með Pólitík.is, alla daga að sjálfsögðu, en sérstaklega næstu daga. Skora líka á ykkur að setja Vefritið í ,,favorites".
![]() |
Nýburar heyrnarmældir á LSH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.3.2007 | 16:44
Ánægði flóðhesturinn
Ahhh... fátt betra en að skríða heim seint um síðdegið og narta í eins og einn Happy Hippo. Sem betur fer fæst sá ánægði ekki hérlendis því þá væri annað en nammið eins og flóðhestur í laginu. Ég luma þó á nokkrum sem ég smyglaði til landsins frá Parma. Fjársjóðurinn minn, leynihornið, varabirgðirnar, eðall.
Annars má ég til með að óska öllum félagsráðgjöfum og félagsráðgjafarnemum til hamingju með daginn í dag. Í dag er nefnilega Alþjóðlegi félagsráðgjafardagurinn haldinn hátíðlegur um heim allan. Af þessu tilefni hélt norðandeild SÍF (Stéttafélag íslenskra félagsráðgjafa - sem nú heitir reyndar Félagsráðgjafafélag Íslands) fund fyrir þá félagsráðgjafa sem starfa á Norðurlandi. Þar sem málstofan mín með fjarfundarbúnaðinum glæsilega féll niður var ég svo heppin að komast á fundinn. Var þar margt um manninn enda félagsráðgjafar hérna á þessum fjórðungi einstaklega fróðleiksfús stétt. Eftir ansi fjörugar og skemmtilegar umræður, m.a. um hið nýja nafn félagsins, steig starfsþjálfunarkennarinn minn í pontu og kynnti MSW-rannsókn sína sem hún gerði á félagsráðgjöfinni við almennar legudeildir FSA. Ég er svo heppin að hafa fengið að lesa rannsóknina strax í janúar þegar ég kom, en góð vísa er sjaldan of oft kveðin. Eftir áhugaverðan fund var svo skundað á Strikið og snætt ljúfan löns.
Ég hef svosem lítið annað markvert að tjá mig um. Ekkert nema lærdómur í gangi þegar vinnu lýkur. Í kvöld ætla ég þó að líta inn til Síra Óskars og hans ektakvinnu Unu og annað kvöld er ég bókuð á bingókvöld í MA með Völlunni minni. Það skulu því hendur standa fram úr ermum þess á milli, enda styttist ansi mikið í lokaskil BA-ritgerðar.
Jú, svo er það í fréttum að ég er búin að sækja um vinnu á Akureyri í sumar. Upp með ferðatöskuna, þið kíkið við!

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)