Snæfríður? Eða annað...

Í dag er fáránlega flottur dagur! Í dag bættist ofurfegurð í íbúðina góðu í Kópavoginum... ég hef ekki enn gefið þessari fegurð nafn, en Snæfríður kemur ansi sterkt inn.. einhverjar fleiri hugmyndir?
Hérna ætlaði ég að setja inn mynd af fegurðinni... en kann ekki alveg nógu vel á þessa elsku ennþá... þetta er sem sagt þessi tölva: http://eshops.netclusive.de/WebRoot/ncs1/Shops/10042816/Products/vs_3202112018/macbook_white_vorschau.gif
Mig hefur sko langað í svona tölvu í ansi langan tíma og því er stórum áfanga náð... loksins, loksins :)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bragi Einarsson

þetta er alveg yndislega fallegt afkvæmi þarna. ég á nebblilega eina af sama kyni

Bragi Einarsson, 6.12.2006 kl. 20:32

2 identicon

úff.... hún er bjútí :D og Snæfríður myndi henta einstaklega vel sem nafn á þessa elsku

kv. Bjössi Ben

Bjössi Ben (IP-tala skráð) 6.12.2006 kl. 22:22

3 identicon

Ég vil benda þér á söguna "Velkomin til Amsterdam" sem byrtist hérna einhverntíman á síðunni. 

Með kaupum á þessu ólíkindatóli sem heitir Makki og ég leggst persónulega gegn, hefur þú farið út úr flugvélinni á vitlausum stað í heiminum.  Ekkert ólagleg borg svo sem, allt voða mellow og rólegt svona en ég meina hvar er spennan?  Hvar er gleðin?  Hvar eru forritin? Hvernig hristiru af henni doðan?  Er til Bonzai buddy fyrir Makka? 

Nei, þessi vél er klárlega ekki Flórens með sínu iðandi lífi og taumlausu gleði.  Hún kemur ekki til að þroskast á við PC þar sem endalaust er hægt að bæta ofaná.  Vissulega getur hún margt úr kassanum sem PCinn getur ekki, en lömbin ganga nú líka strax eftir burð, meðan mannskeppnan heldur varla haus í nokkra mánuði. 

Ef hvað þú getur úr kassanum er mælikvarði á gæði og yfirburði fordæmi ég þig fyrir að slátra yfirvitsmunalegum skeppnum sem geta mikklu meira en við beint úr kassanum.

Kötturinn í sekknum klárlæega, ég legg til þú pakkir henni niður aftur og skilir hið snarasta.  Svo er þetta líka svo kljent, það eru alir með svona!

Höski (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 09:22

4 identicon

hmmm.... þó að ég sé nú minnst þekktur fyrir að vera maccamaður verð ég aðeins að kommenta á þetta hjá þér. Amsterdam er líklega ekki minna spennandi borg en flórenz, í það minnsta er minna af ítölskum dramatíkusum. Bonzai Buddy er (eða var amk) njósnaforrit sem enginn lifandi maður ætti að setja upp hjá sér.

Jú, það er rétt að það er meira mál að "bæta ofan á" tölvuna eins og þú segir. En á móti kemur; er einhver sem uppfærir fartölvur í dag. Í mesta lagi uppfærir þú minnið. sem þú þarft hvort eð er að gera til ná gæðum maccaminnisins, þegar við berum saman sambærilegar tölvur, beint úr kassanum.

Kljént segiru :O hmmm.... veit ekki betur en að mun fleiri eigi Pc tölvu en mac.

Bjössi Ben (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 09:53

5 Smámynd: Eva Kamilla Einarsdóttir

ohh, mig langar líka í svona, ég fæ að klappa henni einhvern tíman þegar ég hitti þig með hana

Eva Kamilla Einarsdóttir, 7.12.2006 kl. 10:05

6 identicon

mér dettur líka í hug Mjallhvít og örugglega eitthvað meira en er bara ekki enn komin í gang... Snæfríður er nú annars líka mjög fallegt nafn.. stórt og flott :)

Dagný (IP-tala skráð) 7.12.2006 kl. 11:55

7 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Hahahahaha.. nice try Höski! Ég er svo fullkomnlega ástfangin af þessari elsku að ekkert, og ég ítreka EKKERT, fær mig ofan af þeirri tilfinningu! Að sjálfsögðu á ég margt ólært í þessari elsku, en tíminn læknar það :) Gott fyrsta komment Höski, til lukku með slátrun skápalesarans og til hamingju með sigurinn á kommentafóbíunni!

Snæfríður heitir þessi elska.. passar svakalega vel við hana og hún bregst vel við því nafni :)

Sagan um ferðina til Hollands má finna hérna: http://www.fanney.blog.is/blog/fanney/entry/17538/

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 7.12.2006 kl. 13:47

8 Smámynd: Bragi Einarsson

Jamm, Bjössi, mun fleiri eiga PC og þar af leiðandi mun fleiri sem naga skjaldarrendur vegna vírusa og lélegs "hardware". PC er ágætis hurðastoppari!

Lifi Makkinn! 

Bragi Einarsson, 7.12.2006 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband