Koddahhh kúrahhh!!!

Jaaaaaáááá! Einmitt.... riiiiiiight.... aha..... aaaaalveg málið!!! Shocking

 

 

Stórskemmtileg helgi að baki. Grillerí hjá MögguStínu á föstudaginn, agalega gaman. Engin kaffipokaleikur í þetta sinnið - en þó gleði og almennur hressleiki. Held ég hafi aldrei hlegið eins mikið og á föstudaginn... my oh my. Höski bojj kom aftur í menninguna, illa lyktandi og loðinn, og við skoðuðum líf bæjarins. Ég held að hann hafi einmitt séð það sama og Ólöf vinkona þegar hún kom til mín: franskar eru matur. Ójá. Svo eru heimar netsins svo skemmtilegir - hitti Tomma bloggvin og samflokksmann fyrir utan Amour. Fékk að vita að hringferðin hans góða sem ég hef ekkert lítið hlegið að var bara ímyndun hans. Fannst það svolítið gott múv Wink

Svo eru það bara nokkrir dagar í höllina :) Get varla beðið eftir að sparsla og mála! Búin að vera svakalega dúleg að skoða veggfóður og málningu í verslunum bæjarins og spá mikið og spekúlera í þessu öllu saman. Núna er svo komin útsala í IKEA svo ég hef verið ansi iðin við að skoða síðuna þeirra í kvöld - svona rétt að kíkja hvað sé í boði ;) Hitti svo Raggaling í dag sem tjáði mér að eitt listaverk fengi ég frá honum í útskriftar-afmælisgjöf :) Vei vei vei! Ég á svo mikið af veggjum að ég á nóg af plássi fyrr fögur verk!

Hey - og við fáum svo bara að sjá tólin hans Barts á næstunni!  Mikið er ég nú spennt Woundering

You Are a Friendly Flirt!
You are quite the flirt, but you don't flirt with just anyone.
And you hardly ever get caught, because your flirting seems so friendly.
You've got a good thing going. Tons of friends, both guys and girls.
And if you do decide to flirt, hardly anyone's the wiser. Pretty trick!
 
Vinalegur daðrari? Er það nú eitthvað gott? Halda fýsilegir menn þá bara ekki að ég sé að leitast eingöngu eftir vinskap? Meina, karlmenn eru ekkert að fatta svona subtle daður held ég....  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebbý

hehe ertu daðurdrottning?  Þó það jafnist ekkert á við skemmtilegt daður þá held ég að það sé alveg sama hvort kynið það er, það þarf að tala hreint út við hinn aðilann til að koma honum í skilning um áhuga.

Rebbý, 9.7.2007 kl. 09:42

2 identicon

You Are a Super Flirt! That´s me, frábært alveg!

Signý (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband