Loose, footloose

Þá er túttan mætt á enn eina (fokk...) næturvaktina. Ég er greinilega ekki týpan í svona leiðindi, er alveg ekki að meika þetta. Össs..

Annars er ég með góða gesti heima hjá mér núna (og gestgjafinn fjarri góðu gamni, djö...) en Hjördís og Þórey komu alla leið frá Snæfellsnesinu. Þær voru mættar í verslanir í morgun og ég hitti þær svo þegar ég hafði fengið mér bjútíslíp eftir næturvaktina. Skoðuðum alveg heilmikið í búðum en versluðum eitthvað minna, sem er bara fínt. Í kvöld fórum við svo allar saman á Footloose í Borgarleikhúsinu og verð ég að segja að ég er ánægð. Var búin að heyra að þetta væri ekkert svakalega skemmtilegt, en ég skemmti mér voða vel. Dansararnir eru mjög flottir og lögin líka fín. Halla Vilhjálmsdóttir sem leikur aðalkvenhlutverkið er snillingur! Gjörsamlega ótrúlega kúl leikkona og stórkostleg rödd sem túttan hefur. Svo er þarna falin gimsteinn sem leikur eina vinkonuna, ótrúlega fyndin karakter sem leikin er þarna. Veivei, þetta var bara skrambi gaman.

En gamanið er víst búið núna.. allir hér komnir í rúmið og mín bíður ekkert nema 2. flokks afþreying. Sá samt mér til mikillar skemmtunar að á Bíórásinni í nótt er sýnd myndin Good girl með Jennifer Aniston og Jake Gyllenhal (slefslef og slurpslurp og nammnamm) svo ég á eitthvað smá gotterí í vændum. Get líka horft á Bachelorette endursýndan sem og Law and order: Criminal intent og Wanted... Óvúbbí...  Gæfi mikið fyrir að sitja heima hjá vinkonum mínum með kaldan öl í hendi og góða tónlist á fóninum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já leitt að þú hafir ekki getað tjúttað með okkur , gerum það bara fljótlega . Takk fyrir magnaða helgi tútta .... ;o)

þórey (IP-tala skráð) 16.7.2006 kl. 21:33

2 identicon

ó jeminn eini hvað maðurinn er fallegur :)

valla (IP-tala skráð) 16.7.2006 kl. 23:27

3 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Þórey: takk sömuleiðis! Ömó samt að ég hafi verið á næturvakt, en næst skal ég sko skála við ykkur! Knús fyrir helgina sæta mín!

Valla: ÉG VEIT!! Óendanleg fegurð samankomin í þessum kroppi... jööööömmmííí! :p

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 16.7.2006 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband