Hver man ekki eftir Super Mario?

super-mario-bros.e_01Á vafri mínu fyrir svefninn rakst ég á myndband um hvernig á að ljúka Super Mario Bros á skjótan hátt. Ég var nú góð í þessum leik hér í denn, en mig minnir nú að ég hafi ekki alveg verið svona góð. Ég er öll upptjúnuð og spennt yfir þessu, nostalgíuhrollur liðast upp bakið og fær hnakkahárin til að rísa. Ætli það sé hægt að fá Nintendo í mac eins og NES dæmið sem ég var með í pc?

 

Ok.. smá update.. verð að benda ykkur á Runaway train með Soul Asylum. Fanatískt flott lag. Man hvað ég fékk stóran kökk í hálsinn að horfa á myndbandið.

Nú svo var það Roxette með Almost unreal sem hljómaði í Super Mario Bros myndinni. Vá hvað ég hlustað mikið á það lag. Dramatík? Neeehhh... 

Hef ég nokkuð sagt það nýlega hve mikið ég dýrka YouTube


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Super Mario... einmitt það sem ég var að hugsa....

Það er von á okkur heim fyrstu vikuna í ágúst í 9 daga, get ekki verið lengur af því að ég þarf að fara vinna. 

Einar Logi (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 10:49

2 identicon

Sæl vina mín ..

Eftir stutta leit fann ég síðuna þína, kíkka á þig með nokkuð reglulegu millibili :)      Ef þú ert enn á Akureyri þá ertu alltaf velkomin í heimsókn til mín, það væri nú alveg gaman að spjalla aðeins. 

 Kv. Rut

Rut Hauks (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 11:46

3 Smámynd: Fanney Dóra Sigurjónsdóttir

Einsi, vonandi hitti ég á þig. Við höfum nú nægan tíma að plana þann hitting. Voðalega ertu orðinn heimakær þarna úti ;)

Rutla, jahér, gaman að heyra frá þér. Nú er ég ekki með neinar contact-upplýsingar um þig. Endilega bjallaðu á mig eða sendu mér meil beibí (fds@hi.is og fanneyds@fsa.is). Ég verð á Akureyrinni fögru út apríl.

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 20.2.2007 kl. 15:19

4 identicon

Heyrðu ég hef sjaldan verið jafn sammála þér! :

1. Ég elskaði Mario Bros. Ég spilaði það svo mikið að mig dreymdi Mario á næturna

- og það er hægt að spila það á Pc man samt ekki hvernig

2. Runaway train eitt sorglegasta lag sem ég veit um!! Fór að hágráta þegar ég sá myndbandið og fæ enn í magann við að heyra lagið!

Veit reyndar ekki hvaða Roxette lag þetta er, en Heart er/var góð hljómsveit

kveðja Guðný 

Guðný (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 16:58

5 identicon

frænka mín á super mario í game boy. Ég húkkaðist á þessu aftur fyrir svona þremur árum. Skilaði game-boyinum þegar ég var hætt að þrífa mig og sá fram á fall í nokkrum prófum....

 frábær leikur!

valla (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband