Stjörnuspáin - again

Ég las yfir merkin í morgun og hef ákveðið í samræmi við mína stjörnuspá að í kvöld þarf ég eiginlega að hitta þessi merki, eða þ.e. aðila sem eru í þessum merkjum:

SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Veraldarvani er leynivopn sporðdrekans í kvöld. Uppáhalds viðfangsefnin eru viðskipti yfir höfin, nýtt tungumál eða daður við dularfulla manneskju sem kemur langt að.

 

LJÓN 23. júlí - 22. ágúst
Ljónið er yfirleitt eins og kertið, ekki spegillinn sem endurspeglar ljósið. Í dag leggur það metnað sinn í að vera sá sem kemur auga á eldinn innra með öðrum og miðlar ljósi í veröldinni með því að hjálpa þeim til þess að koma auga á það.

 

KRABBI 21. júní - 22. júlí
Viðhorf krabbans er ekki niðurnjörvað eða fast á tilteknum stað. Það er verkefni í þróun. Hann myndar sér skoðun og myndar sér svo aðra skoðun. Það kemur út eins og hann sé tættur en eitthvað stórfenglegt er að koma saman, hægt og rólega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja, ég er fæddur þann 11. nóvember 1960 og ætli árin 46 geri mig ekki "veraldarvanann"? Hitt er ljóst að ég hef ódrepandi áhuga á viðskiptum yfir höf og lönd ... veit ekki með daðrið ... það passar eiginlega betur við mig það sem sagt er um ljónið, að "vera sá sem kemur auga á eldinn innra með öðrum og miðlar ljósi í veröldinni með því að hjálpa þeim til þess að koma auga á það."

Ég vil a.m.k. vera þannig.

Og það vill svo skemmtilega til að ég er stöðugt að taka á móti fólki sem vill hitta mig, en bara því fólki sem lætur síðuna mína www.Barnahjalp.com kveikja í sér neista ... því þar sem enginn reykur er, þar er enginn eldur heldur - og ég nenni alls ekki að eyða tíma mínum með fólki sem logar ekki af áhuga, bjartsýni og framsækni.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 26.1.2007 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband