27.3.2007 | 16:44
Ánćgđi flóđhesturinn
Ahhh... fátt betra en ađ skríđa heim seint um síđdegiđ og narta í eins og einn Happy Hippo. Sem betur fer fćst sá ánćgđi ekki hérlendis ţví ţá vćri annađ en nammiđ eins og flóđhestur í laginu. Ég luma ţó á nokkrum sem ég smyglađi til landsins frá Parma. Fjársjóđurinn minn, leynihorniđ, varabirgđirnar, eđall.
Annars má ég til međ ađ óska öllum félagsráđgjöfum og félagsráđgjafarnemum til hamingju međ daginn í dag. Í dag er nefnilega Alţjóđlegi félagsráđgjafardagurinn haldinn hátíđlegur um heim allan. Af ţessu tilefni hélt norđandeild SÍF (Stéttafélag íslenskra félagsráđgjafa - sem nú heitir reyndar Félagsráđgjafafélag Íslands) fund fyrir ţá félagsráđgjafa sem starfa á Norđurlandi. Ţar sem málstofan mín međ fjarfundarbúnađinum glćsilega féll niđur var ég svo heppin ađ komast á fundinn. Var ţar margt um manninn enda félagsráđgjafar hérna á ţessum fjórđungi einstaklega fróđleiksfús stétt. Eftir ansi fjörugar og skemmtilegar umrćđur, m.a. um hiđ nýja nafn félagsins, steig starfsţjálfunarkennarinn minn í pontu og kynnti MSW-rannsókn sína sem hún gerđi á félagsráđgjöfinni viđ almennar legudeildir FSA. Ég er svo heppin ađ hafa fengiđ ađ lesa rannsóknina strax í janúar ţegar ég kom, en góđ vísa er sjaldan of oft kveđin. Eftir áhugaverđan fund var svo skundađ á Strikiđ og snćtt ljúfan löns.
Ég hef svosem lítiđ annađ markvert ađ tjá mig um. Ekkert nema lćrdómur í gangi ţegar vinnu lýkur. Í kvöld ćtla ég ţó ađ líta inn til Síra Óskars og hans ektakvinnu Unu og annađ kvöld er ég bókuđ á bingókvöld í MA međ Völlunni minni. Ţađ skulu ţví hendur standa fram úr ermum ţess á milli, enda styttist ansi mikiđ í lokaskil BA-ritgerđar.
Jú, svo er ţađ í fréttum ađ ég er búin ađ sćkja um vinnu á Akureyri í sumar. Upp međ ferđatöskuna, ţiđ kíkiđ viđ!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dćgurmál, Stjórnmál og samfélag, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Akureyri í sumar verđur klárlega meira ađlađandi viđ ţessar fréttir!
Anna Pála Sverrisdóttir, 27.3.2007 kl. 17:57
Takk lovlí.. tek fagnandi á móti ţér (og Bjarninu) í sumar... :)
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 27.3.2007 kl. 18:17
Innlitunarkvitt :)
Kolla, 27.3.2007 kl. 19:19
heyrðu var ég búin að segja þér að ég veit um íbúð til leigu í innbænum í sumar?
valla (IP-tala skráđ) 27.3.2007 kl. 20:33
Bara kvitta fyrir mig
ţórey (IP-tala skráđ) 27.3.2007 kl. 21:02
Valla, DO tell me more!
Takk görlís fyrir kvitteríiđ :)
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 28.3.2007 kl. 01:14
Mađur verđur ađ reyna ađ kikka á ţig einhverntíma í sumar
Glćsilegtađ heyra međ umsóknina hvar ertu búin ađ sćkja um vinnu?
Björn Benedikt Guđnason, 28.3.2007 kl. 08:42
nýtt blogg hefur verið stofnað. tonskald.wordpress.com (var ekkert að skilja moggabloggið :-( ). Hvaða vinnu varstu að sækja um?
Ţóra Marteins (IP-tala skráđ) 28.3.2007 kl. 09:03
Forvitin skita, fćr ekki ađ vita
Svara ekki svona á veraldarvefnum.... ţekkiđi símbúnađ?
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 28.3.2007 kl. 10:12
Hć hć frćkna frćnka, hvernig vćri nú ađ hittast svona planađ, svona til tilbreytingar frá ţví ađ hittast á röltinu í kringlunni eins og viđ gerđum reglulega fyrir nokkrum árum.
Verđ á eyrinni ţinni í nćstu viku og vćri gaman ađ skellast á kaffihús eđa eitthvađ og spjalla... Hvađ segiru, verđuru mikiđ bissí???
Dagný frćnka (IP-tala skráđ) 28.3.2007 kl. 13:24
Endilega frćnka! Sendu mér línu og segđu mér nánar hvenćr ţú ert í fegurđinni... fds@hi.is
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 28.3.2007 kl. 14:06
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.